Heim
Vigtarmenn athugið! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 10. Maí 2010 14:17

Allnokkrir bátar hafa fengið sérstaka úthlutun á skötusel, kemur fram sem skötuselur 2 í GAFLI og stöðumynd.  Skipstjórar skulu tilkynna vigtarmönnum þegar þeir landa slíkum skötusel og skal hann skráður sem slíkur í GAFL

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. Ágúst 2010 13:21
 
Uppreikna afurðalínu hæg
Föstudagur, 30. Apríl 2010 09:29

 

Við síðustu uppfærslu slæddist með galli í nýju afurðarvigtuninni.  Gallinn  lýsir sér þannig  að það getur tekið langan tíma að fyrir GAFL að framkvæma aðgerðina „Uppreikna afurðarlínu“.  Unnið er að endurbótum og er reiknað með því að þetta verði komið í lag í byrjun næstu viku. 

 

 
Uppfærsla 1.3.0 28.04.2010
Miðvikudagur, 28. Apríl 2010 11:00

Helstu breytingar

Afurðavigtun

 

Afurðavigtun hefur verið breytt á þann hátt að nú getur vigtarmaður stofnað beint vigtarnótu af gerðinni  „Afurðir“ og hægt er að skrá stærð úrtaks og uppreikna í sömu aðgerð

Þetta getur verið heppilegt í þeim tilvikum þegar fyrir liggja allar upplýsingar um úrtaksvigtunina þegar skráning í GAFL hefst.  

Lesa meira...
 
Endurbætur á skýrslum
Miðvikudagur, 21. Apríl 2010 14:27

 

GAFL skýrslurnar á hafnarvef Fiskistofu „Hreyfingarlisti kaupenda“, „Hreyfingarlisti seljenda“ og „Hreyfingarlisti viðtakenda“ hafa verið endurbættar að því leiti að nú er hægt að sía skýrslurnar með veiðarfærum og fisktegundum.

 
Vigtun grásleppuhrogna
Miðvikudagur, 24. Mars 2010 10:12
Að gefnu tilefni telur Fiskistofa ástæðu til að fara sérstaklega yfir vigtun og skráningu á grásleppuhrognum:
Þegar að grásleppuhrogn eru vigtuð, þá á eingöngu að vigta þau á hafnavogsnótu. Grásleppuhrogn fara aldrei til endurvigtunar og skulu alltaf endanlega vigtast á hafnarvog.
Stuðullinn vegna "sull"frádrags er innbyggður inn í aflaskráningarkerfið. Því er ákaflega mikilvægt að hafnarvigtarmenn reikni ekki stuðul af heildarvigt áður en niðurstaða vigtunar er skráð í GAFLINN. Alltaf skal skrá brúttóvigt á grásleppuhrognum í GAFL (að frádregnum ílátum) og mun kerfið sjálft draga "sull"stuðul frá.

Frá og með mánudeginum 22. mars verður "sull"frádrag sýnilegt á vigtarnótu (hafnarvogsnótu) sem ísprósenta. Markmiðið með því er að hafnarvigtarmenn geti séð hvernig "sull" frádrátturinn reiknast. Unnið er að því á Fiskistofu að breyta heitinu úr ísprósentu í "sull" þannig að rétt lýsing sé á nótunni en fyrst um sinn mun standa "ísprósenta" þó svo að frádragið reiknist raunverulega vegna sulls.
 
« FyrstaFyrri123456NæstaSíðasta »

Síða 1 af 6