|
GAFL vefurinn lokaður í kvöld 12.08.09 |
|
|
|
|
Skrifað af: Vilhjálmur Hallgrímsson
|
|
Miðvikudagur, 12. Ágúst 2009 14:50 |
|
Vegna viðhalds verður GAFL vefurinn verður lokaður í kvöld 12. Ágúst á milli kl. 18 og 21. Þetta hefur engin áhrif á aflaskráningarkerfið GAFL og mun það starfa eðlilega. Þeir vigtarmenn sem eru vanir því að ræsa GAFL frá vefsíðunni og þurfa að ræsa hann á umræddu tímabili geta gert það á eftirfarandi slóð: http://stofublom.fiskistofa.is/gafl/local.jsp Vinsamlegast búið til "shortcut" eða skrifið slóðina hjá ykkur. |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 12. Ágúst 2009 14:55 |
|
|
Skrifað af: Sveinn Halldór Oddsson Zoëga
|
|
Fimmtudagur, 11. Júní 2009 22:19 |
|
Ný útgáfa af Gafl er komin í loftið, nr. 1.2.5. Í þessari útgáfu er búið að lagfæra törun í vigtarglugganum og í skrá-törun. Enn er þó smá galli í því að kalla fram törun í skrá - brúttóvigtun gáms, hann lýsir sér í því að það getur þurft að velja flutningstækið aftur þar ef farið er í að tara. Þetta stefnum við að því að laga en þangað til mælum frekar með því að nota skrá-törun eða að tara í gegnum stoðtöflur-bílar í stað þess að tara beint í gáma-glugganum. Í þessari útgáfu er sem sagt aftur hægt að tara í vigtarglugganum (F7 glugganum) án þess að vera búinn að fullklára vigtarfærsluna. Varðandi skipta vigt og síðasta brúttó þá er sá galli enn inni að ef vigt er skipt þá lækkar síðasta brúttó flutningstækisins. Því mælum við með því að skipta ekki vigt fyrr en búið er að fylla bílinn. Lagfæring á þessu kemur síðar í sumar. Til að nálgast þessa nýju útgáfu á að vera nóg að keyra Gaflinn upp (endurræsa ef hann hefur verið í gangi) og titilröndin í forritinu ætti að sýna textann GAFL 1.2.5 |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 26. Júní 2009 13:38 |
|
Skrifað af: Sveinn Halldór Oddsson Zoëga
|
|
Þriðjudagur, 02. Júní 2009 11:49 |
|
Ný útgáfa af Gafl er komin í loftið, nr. 1.2.4. Ekki reyndist þörf á því að aftengja alla notendur og ætti ný útgáfa að koma upp næst þegar Gafl-inn er keyrður upp. Mikilvægt er að allir notendur endurræsi forritið í dag og fái inn nýja útgáfu. Helstu breytingar eru lagfæringar á villum sem hafa verið að koma upp við að skrá vigtanir og loka nótum. |
|
|
Villa við að prenta vigtarnótu |
|
|
|
|
Skrifað af: Vilhjálmur Hallgrímsson
|
|
Miðvikudagur, 20. Maí 2009 15:44 |
|
Orðið hefur vart við villu þegar reynt er að prenta vigtarnótur og tilkynning um að nóta finnist ekki. þetta er ekki að gerast hjá öllum höfnum en unnið er að rannsókn og lagfæringum það virðist hjálpa efir að villan kemur upp að velja skipið aftur í töflunni "Yfirstandandi landanir" og velja þannig löndunin aftur. Smellið síðan á prenta hnappinn. |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 22. Maí 2009 11:23 |
|
GAFL 1.2 - Uppærsla 18.05.2009 |
|
|
|
|
Skrifað af: Vilhjálmur Hallgrímsson
|
|
Mánudagur, 18. Maí 2009 12:19 |
|
Uppfærslan lýtur að þessu sinni að skilvirkni og hraða GAFL forritsins. #8379 Silvirkni Gerðar hafa verið undirliggjandi breytingar á forritinu sem ætti að hafa í för með sér umtalsverða hraðaukningu. |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 18. Maí 2009 12:29 |
|
|
|
|
|
|
Síða 3 af 6 |