Heim
Skráningar tengdar fiskeldi í GAFL Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Helga Sigurrrós Valgeirsdóttir   
Fimmtudagur, 14. Maí 2009 16:02

Margir lenda í vandræðum með aflaskráningar sem tengjast fiskeldi og höfum við verið beðin um að útbúa leiðbeiningar um það. Um þrenns konar "landanir" tengdar fiskeldi getur verið að ræða; Í söfnunarkví, til áframeldis eða úr áframeldi. Hér að neðan eru leiðbeiningar um skráningar í fiskeldi sem vonandi eiga eftir að koma að notum.

 Kv. frá Göflurum á Fiskistofu

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 14. Maí 2009 16:07
Lesa meira...
 
Afli af sjóstangveiðimótum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Helga Sigurrrós Valgeirsdóttir   
Mánudagur, 04. Maí 2009 18:08

Þar sem sjóstangveiðimótin eru að fara í gang aftur langar okkur á upplýsingasviði að rifja upp hvernig skrá á slíkan afla í GAFLINN. Rétt er að minna á að líkt og með allan afla sem fer í gegnum íslenska höfn þá skal hann vigtaður og skráður í aflaskráningakerfið. Skylt er að vigta aflann á markaði og á hann að sjá til þess að endanlegar niðurstöður berist til hafnarinnar sem ber að skrá þær í GAFLINN á skipaskrárnúmer 9999 og veiðafærið sjóstöng. Berist upplýsingarnar ekki af markaði og til hafnar eru ábendingar þess efnis vel þegnar.

Þetta á eingöngu við um sjóstangveiðimótin, en þau má halda að fengnu sérstöku leyfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Annan afla af sjóstöng ber að skrá á veiðiskipið sjálft.

Sumarkveðjur. Starfsfólk upplýsingasviðs

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 13. Maí 2009 13:18
 
Gaflinn liggur niðri laugardaginn 18. apríl vegna uppfærslu á gagnagrunni! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Jón Már Halldótsson   
Fimmtudagur, 16. Apríl 2009 10:30

Gaflinn mun liggja niðri vegna uppfærslu á gagnagrunni Fiskistofu laugardaginn 18 apríl og verður því lokaður frá klukkan 7:00 um morguninn og er áætlað að hann verði lokaður í um 8 klukkustundir.Vinsamlega slökkvið á Gaflinum í lok vinnudags á morgun, föstudag.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 14:03
 
Uppfærsla 09.03.2008 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Vilhjálmur Hallgrímsson   
Mánudagur, 09. Mars 2009 15:35

Ný uppærsla var gerð á GAFL kerfinu mánudaginn 9. mars 2009.

Helstu breytingar voru:
 
#8171 Samantekt á vigtarnótum

#8323 Frestur fyrir þá sem hafa heilvigtunarleyfi á uppsjávarfisk (síld og loðnu) fá leyfi til að vigta í 5 daga í staða 2 nú.

#7735 Heiti fyrir ástand í samantekt var of stuttur.  Þessu var breytt í skammstöfun.

#8327 Vigtarmenn geta ekki klárað "Frá-vigtunarleyfishafa" nótu ef þeir hafa valið "Höfn endurvigtar"

Síðast uppfært: Mánudagur, 09. Mars 2009 15:37
 
Uppfærsla á mánudag Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Helga Sigurrrós Valgeirsdóttir   
Föstudagur, 06. Mars 2009 13:57
Á mánudag klukkan tólf á hádegi verður GAFLINN uppfærður. Það er afar mikilvægt að enginn sé innskráður í GAFL þegar slíkar uppfærslur eiga sér stað. Það tryggir að vinna komist hratt og örugglega í fyrra form. Við viljum því biðja ykkur að tryggja að allir séu útskráðir klukkan 12 á mánudag, og sérstaklega að hafa í huga ef einhver sem er að vinna í GAFLI í dag eða um helgina og er ekki líklegur til þess að vera á mánudaginn skrái sig þá út í dag. Við hvetjum ykkur svo til þess að fylgjast með gangi mála hér á síðunni hjá okkur.
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 26. Mars 2009 09:32
 
« FyrstaFyrri123456NæstaSíðasta »

Síða 4 af 6