|
Eins og flestir hafa orðið varir við hefur á undanförnum dögum verið unnið að uppfærslum á GAFLi.
Eins og gengur og gerist við uppfærslu stórra kerfa hefur gengið á ýmsu en það er von okkar á Fiskistofu að vandamálin séu öll komin fram og þetta sé liðið hjá. Með þessari endurútgáfu hefur verið opnuð ný verkefnasíða fyrir GAFL - http://gafl.fiskistofa.is/. Þessi síða býður upp á aukna möguleika til samskipta og Fiskistofa kemur til með að birta þarna upplýsingar um GAFLinn, tilkynningar, ábendingar og annað sem erindi á til notenda GAFLs. Auk þessa er að finna á síðunni handbókina um GAFL, notendur geta komið á framfæri ábendingum og til stendur að safna í upplýsingabanka um spurt og svarað svo eitthvað sé nefnt. Það er von okkar ð þessi síða stuðli að bætri þjónustu við notendur.
Við viljum hvetja notendur til þess að temja sér að ræsa GAFL í gegnum þessa síðu, og þar með nýta sér þennan vettvang til upplýsinga og fróðleiks. |