Innskráning
| Gafl 1.2.5 |
|
Ný útgáfa af Gafl er komin í loftið, nr. 1.2.5. Í þessari útgáfu er búið að lagfæra törun í vigtarglugganum og í skrá-törun. Enn er þó smá galli í því að kalla fram törun í skrá - brúttóvigtun gáms, hann lýsir sér í því að það getur þurft að velja flutningstækið aftur þar ef farið er í að tara. Þetta stefnum við að því að laga en þangað til mælum frekar með því að nota skrá-törun eða að tara í gegnum stoðtöflur-bílar í stað þess að tara beint í gáma-glugganum. Í þessari útgáfu er sem sagt aftur hægt að tara í vigtarglugganum (F7 glugganum) án þess að vera búinn að fullklára vigtarfærsluna. Varðandi skipta vigt og síðasta brúttó þá er sá galli enn inni að ef vigt er skipt þá lækkar síðasta brúttó flutningstækisins. Því mælum við með því að skipta ekki vigt fyrr en búið er að fylla bílinn. Lagfæring á þessu kemur síðar í sumar. Til að nálgast þessa nýju útgáfu á að vera nóg að keyra Gaflinn upp (endurræsa ef hann hefur verið í gangi) og titilröndin í forritinu ætti að sýna textann GAFL 1.2.5
|