Heim » Uppfærslur » Uppfærsla - GAFL 1.2.6
Uppfærsla - GAFL 1.2.6
Helstu breytingar við uppfærslu GAFL's 1.2.6 
 
#8428 Tara
Nú er hægt að tara flutningstæki í sértökum reitt sem settur hefur verið í "status bar" neðst í landanamyndinni.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
#8430 Breytingar á vigtun Humars.
Hætt er við að láta GAFL búna til auka línur fyrir humar þegar vigtarnótu er lokað.  
Nú stofna vigtarmenn sjálfir aukalínur eftir þörfum á nótu af gerðinni "Frá-vigtunarleyfishafa".

Ástand/Veiðstofn samsetningar.  
Vigtarmenn hafa stundum orðið varir við hökt þegar farið er á milli reitanna "Veiðstofn" og "Ástand"
Nú eru þessar upplýsingar lesnar úr annari töflu sem er "léttari" og ætti því höktið að minka eða hverfa.
#8436 Skipta vigt
Galli - Það var sama hvaða vigtun var valin til að skipta, GAFL skipti alltaf efstu vigtarlínunni í vigtarnótunni.
Þetta hefur verið lagað.
 
#8363 Gámur sem frádráttarliður
Frádráttarliðnum "gámur" hefur verið bætt við í frádráttarglugga vigtana.
 
#8505 Eyða vigt
Galli - Við sérstakar aðstæður þá eyddi GAFL annari vigtun en þeirri sem valin hafði verið til vigtunar. Þetta hefur nú verið lagað.  
 
#8338 Upphafsstaða bendils sett
Í vigtarnótu af gerðinni "Frá-vigtunarleyfishafa"  var upphafsstaðan í flutningstæki. Ný upphafsstaða er nú í reitnum Nettómagn.
 
#8506 Upphafsstaða bendils sett
Í vigtarnótu af gerðinni "Hafnarvog"  var upphafsstaðan í reitnum "Vigt".
Ný upphafsstaða er nú í reitnum "Flutningstæki". 
 
 
Athugið 
Notendur sem hafa aðgang að fleiri en einni höfn þurfa ekki að velja höfn í uppkeyrslu, þeir verða sjálfkrafa skráðir inn á síðustu höfn sem þeir voru skráðir inn á. Menn þurfa því að hafa varann á sér og fylgjast með því á hvaða höfn verið er að vinna.