Heim » Leiðbeiningar » Vigtarnótur í tölvupósti
Vigtarnótur í tölvupósti

Vissir þú að það er auðvelt að senda vigtarnótur úr GAFL’i í tölvupósti.

Þessi aðferð hefur marga kosti umfram það að senda nótur á faxi.

Fyrir utan augljósan sparnað í pappír og bleki  þá er þetta bæði fljótlegri aðferð og umhverfisvænni.  Letur faxnótu getur einnig verið óskýrt þar sem letrið er smátt.

Hægt er að senda vigtarnótur úr GAFL’i í tveimur einföldum skrefum. 

1. skref.   Í stað þessa að prenta þá er valið að “Vista”, vigtarnótunni gefið nafn og hún vistuð á pdf formi t.d. “nota.pdf  eða nota858.pdf “ osfrv.  Nótan vistast á pdf formi á tölvu sendandans.

2. skref.  Sendu tölvupóst til viðtakanda og hengdu vigtarnótuna úr skrefi 1. sem viðhengi.