Heim » GAFL fréttir
Uppreikna afurðalínu hæg
Föstudagur, 30. Apríl 2010 09:29

 

Við síðustu uppfærslu slæddist með galli í nýju afurðarvigtuninni.  Gallinn  lýsir sér þannig  að það getur tekið langan tíma að fyrir GAFL að framkvæma aðgerðina „Uppreikna afurðarlínu“.  Unnið er að endurbótum og er reiknað með því að þetta verði komið í lag í byrjun næstu viku. 

 

 
Vigtun grásleppuhrogna
Miðvikudagur, 24. Mars 2010 10:12
Að gefnu tilefni telur Fiskistofa ástæðu til að fara sérstaklega yfir vigtun og skráningu á grásleppuhrognum:
Þegar að grásleppuhrogn eru vigtuð, þá á eingöngu að vigta þau á hafnavogsnótu. Grásleppuhrogn fara aldrei til endurvigtunar og skulu alltaf endanlega vigtast á hafnarvog.
Stuðullinn vegna "sull"frádrags er innbyggður inn í aflaskráningarkerfið. Því er ákaflega mikilvægt að hafnarvigtarmenn reikni ekki stuðul af heildarvigt áður en niðurstaða vigtunar er skráð í GAFLINN. Alltaf skal skrá brúttóvigt á grásleppuhrognum í GAFL (að frádregnum ílátum) og mun kerfið sjálft draga "sull"stuðul frá.

Frá og með mánudeginum 22. mars verður "sull"frádrag sýnilegt á vigtarnótu (hafnarvogsnótu) sem ísprósenta. Markmiðið með því er að hafnarvigtarmenn geti séð hvernig "sull" frádrátturinn reiknast. Unnið er að því á Fiskistofu að breyta heitinu úr ísprósentu í "sull" þannig að rétt lýsing sé á nótunni en fyrst um sinn mun standa "ísprósenta" þó svo að frádragið reiknist raunverulega vegna sulls.
 
Uppfærsla 02.10.2009 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Vilhjálmur Hallgrímsson   
Föstudagur, 02. Október 2009 13:45
Vegna uppfærslu á gagnagrunnum Fiskistofu þarf að loka GAFL'i á milli kl 16:30 og 17:00 í dag föstudaginn 2 október 2009.
Vinsamlegast slökkvið á GAFL'i fyrir kl 16:30 og endurræsið hann ekki fyrr en eftir kl 17:00

Við vonum að þetta valdi ekki miklum óþægindum!

 
Um 10 mínútna leiðréttingarfrestinn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af: Vilhjálmur Hallgrímsson   
Miðvikudagur, 04. Mars 2009 15:42
Eins og fram hefur komið þá er vigtarmönnum ekki heimilt að bæta vigtarnótu við á löndun eftir að löndun er lokið.  þetta hefur þau áhrif að ekki er hægt að leiðrétta nótur eftir að löndun líkur jafnvel þótt 10 mínútna fresturinn sé ekki liðinn. Til að komast hjá þessu, bíðið með að loka lönduninni í 10 mínútur eftir að síðasta "Til-endurvigtunar"nótan er skráð.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. Mars 2009 15:43
 
Ný GAFL verkefnasíða Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Eins og flestir hafa orðið varir við hefur á undanförnum dögum verið unnið
að uppfærslum á GAFLi.

Lesa meira...
 
« FyrstaFyrri12NæstaSíðasta »

Síða 1 af 2